Jahérna hér ég er nú alveg búin að vera lélegust í heimi hérna
undanfarið!!!!!
En allavega ég er enn á lífi þó að það hafi lítið heyrst frá mér
undanfarið. Er bara úin að vera að vinna eins og mófó og hef
einhvernvegin ekki alveg verið í stuði fyrir eitthvað blogg dæmi
sko.
En allavega ég er komin núna og skal alveg henda inn smá hérna
og þá sérstaklega af því að ég var að koma heim frá eyjunni góðu í
norðri í dag
Ég nefnilega slengdi mér í Grísey á föstudaginn með skæruliðana
mína og það var bara yndislegt
Fórum með ferjunni á
föstudagsmorguninn í ekkert allt of góðu veðri, reyndar var ekki
mikið af veðrinu en það var mjög þungur sjór og því mikill
veltingur en að sjálfsögðu stóðu víkingarnir mínir það af sér eins
og alltaf áður. Enda var það alveg rætt um helgina hvað ég væri
einstaklega heppin með það að þær verða ekki sjóveikar þegar við
förum með ferjunni. Og málið er að eftir því sem er verra í sjóinn
þeim mun betur sofa þær og ég reyndar líka
En já við sem sagt skelltum okkur og ég er alveg að segja ykkur
það að ég fann bara þegar ég steig á bryggjuna úti í eyju að mér
bara fannst ég vera komin heim aftur!!!!! Og ég er sko alveg búin
að vera að biðja fólk um að minna mig á afhverju í ósköpunum ég
flutti í land!!!!
Það var SVOOOO gott að komast aftur út og ég
tala nú ekki um að vera gestur hjá Hédda okkar,,,,,
Ég nefnilega dreyfði mér aðeins um eyjuna sko, var í gistingu
hjá Hédda og klippti svo hjá Önnu Maríu og Magga þannig að ég kom
víða við
En þetta var alveg yndislegt og Jana Sól var ekki lítið
ánægð að vera komin aftur til Hédda síns og mjög fljótlega eftir að
við komum þá voru þau farin saman á röltið, Niður í fiskhús og svo
í fjárhúsin hjá Gunna Stebba, bara alveg eins og þegar við bjuggum
þarna 
Malena hvarf út að hitta krakkana og ég bara sá hana varla neitt
alla helgina. Hún rétt sást til að fá sér að borða og til að sofa
annars var hún bara einhverstaðar úti að leika sér
Og Jana var
alveg að verða eins og Malena. Ég hafði ekki undan að fylgjast með
hvert þær fóru og með hverjum þær voru....... En það var svo sem
ekki við öðru að búast
En sem sagt var helgin alveg yndisleg í alla staði og ég var
alveg ekkert á því að nenna að vera að koma heim í dag en það tekur
víst allt enda einhverntíma og því var ekkert annað að gera en að
hlussast niður í ferju rúmlega 2 og skella sér í koju bara og vera
að gera minna en ekki neitt í 3,5 klukkutíma.......
Svo þegar við komum aftur í bæinn þá bara var Sara sótt og öllu
liðinu skutlað heim og ég skellti mér í vinnu niðri í Sjalla.
Reyndar er engin smá gleði hjá okkur þremur núna. Erum sko alveg
farnar að sjá fyrir endann á þessu og ef allt gengur upp eins og
við erum að hugsa þetta þá náum við að klára þessi ósköð núna +á
fimmtudaginn og bara plís plís plís krossið fingur fyrir okkur svo
við náum að klára þetta núna fyrir helgi
Allavega sendið okkur
góða strauma milli 19 og 23.30 öll kvöld í þessari viku
En nú held ég að það sé alveg kominn svefn tími á
stelpuna.....
Þangað til næst........Sjómanns líf, Sjómanns líf ástir og
ævintýr....lalalala 
Knús og kossar Mona